Laxveiðivertíðin hefur farið ótrúlega vel af stað og nú er jónsmessustraumurinn að dæla laxi uppí árnar. Margar ár eru svo gott sem full seldar í sumar, en þó er ein og ein stöng laus hér og þar. Ytri Rangá er svo gott sem uppseld í júlí og ágúst en þó eru forfalla stangir lausar um miðjan júlí. Í Norðurá I eru nánast allir dagar seldir en þó er ein forfalla stöng laus 30. júní – 3. júní. Sjá hér – einnig er hægt að senda póst á info at veida.is