Blanda IV hefur verið gott sem fullbókað í júlí og fram til dagsins í dag. Nú var að losna 1 holl, 10-12. ágúst. Veiðin er buin að vera flott á svæðinu og fiskar að veiðast frá efsta stað og niður. Góð staða er á Blöndulóni núna og lítur út fyrir að það fari ekki á yfirfall fyrr en seint í ágúst, þó óljóst sé um dagsetningar.

Hollið 10-12. ágúst er laust í Blöndu IV – 3 stangir í 2 daga. Ágætt, einfalt hús stendur veiðimönnum til boða – húsið er á svæði IV. Gisting er fyrir 6 manns. Hérna má lesa um lausa hollið.