Laxá á Refasveit er 3ja stanga laxveiðiá sem fellur til sjávar rétt norðan við Blönduós. Veitt er á bæði maðk og flugu í Laxá. Veiðin í Laxá á Refasveit hefur verið ágæt í sumar, ekki eins góð og í fyrra en trúlega endar hún nálægt 280 löxum. Í dag eru komnir um 220 laxar á land. Fimm dagar eru lausir í september. Þessa daga má sjá hérna.