Sú frétt birtist nú fyrir stundu á vef SVFR að Veiðifélag Laxdæla og SVFR hafi komist að samkomulagi um að ljúka samstarfi félaganna um leigu á veiðirétti í Laxá í Dölum. Þar segir ennfremur: “ Veiðin í Laxá í Dölum hefur ekki staðið undir væntingum undanfarin þrjú ár og eftirspurn félagsmanna eftir veiðileyfum þar farið minnkandi.„.

Hér er enn eitt veiðisvæðið að hverfa úr framboði SVFR. Veiðifélag Laxdæla mun á næstu dögum semja við innlendan aðila til að taka Laxá í Dölum í umboðssölu fyrir komandi veiðitímabil. Hérna má lesa fréttina sem birtist á vef SVFR

Frétt af vef svfr.is, 12/11/2013

Laxá í Dölum kveður.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðifélag Laxdæla hafa komist að samkomulagi um að ljúka samstarfi félaganna um leigu á veiðirétti í Laxá í Dölum. SVFR óskar Dalamönnum alls hins besta og þakkar gott samstarf á undanförnum árum. Veiðin í Laxá í Dölum hefur ekki staðið undir væntingum undanfarin þrjú ár og eftirspurn félagsmanna eftir veiðileyfum þar farið minnkandi. Í ljósi minnkandi veiði var SVFR með til skoðunar breytt veiðifyrirkomulag á svæðinu, fluguveiði eingöngu og veiða og sleppa með það að markmiði að byggja ána upp á ný. En eftir ítarlega skoðun komst stjórn SVFR að þeirri niðurstöðu að ekki sé verjandi að vera með mikla fjárhagslega skuldbindingu á félaginu vegna Laxár í Dölum við þær aðstæður þegar byggja þarf ársvæði upp á ný. Fjölmargir félagsmenn SVFR hafa átt góðar stundir á bökkum árinnar og óskandi að hún nái fljótt sínum fyrri styrk.

[email protected]