Laxveiðin hefur byrjað alveg ágætlega núna í sumar. Heildartölur í Norðurá eru nú um 50 laxar og nú um helgina komu fyrstu smálaxarnir á land, rúmlega 60 cm velhaldnir laxar sem veit á gott fyrir sumarið. Það er örlítið laust í Norðurá nú í júní. Hægt er að senda póst á info at veida.is. Veiðin hófst í Þverá nú fyrir helgina. Fyrsta hollið var með 15 laxar, flesta á bilinu 70-80 cm en þó komu 2 smálaxar á land á síðustu vaktinni. Kjarrá opnaði svo í morgun með 8 löxum. Það styttist svo í að laxveiðitímabilið renni af stað af krafti, en flestar laxveiðiár landsins opna á tímabilinu 24-30. júní. Hér má sjá laus laxveiðileyfi í sumar.
info@veida.is