Hreggnasi hefur tilkynnt um framlengingu á leigu á Grímsá og Tunguá í Borgarfirði til næstu 3 ára. Veiðin hefur verið á góðri uppleið í Grímsá og Tunguá, skv. tilkynningunni og seiðabúskapur ánna jafnframt vaxið umtalsvert samhliða aukinni verndun síðustu ára. Hægt er að sjá tilkynninguna í fullri lengd inná Hreggnasi.is
Veiðisvæði Hreggnasa eru skráð hér á veiða.is og er þar hægt að nálgast allar helstu upplýsingar um árnar, s.s. hvar upplýsingar um veiðileyfi er að finna.