Litla-Þverá í Borgarfirði er 2ja stanga laxveiðiá sem rennur saman við Þverá skammt fyrir ofan Klapparfljót. Heimilt er að veiða á flugu í Litlu-Þverá. Gott hús fylgir með leyfum í ánni. Nú eru 6 lausir dagar í ánni inni á veiða.is, þrjú 2ja daga holl. 2 þessara holla eru á tímabilinu 31. júlí til 4. ágúst. Verð pr. stangardag er kr. 24.700 sem er með því lægsta sem sést í laxveiði hér á landi, ekki síst ef litið er til þess að gott veiðihús fylgir með leyfunum. Hér má sjá nánari upplýsingar um Þverá.