Um helgina var gerður nýr 10 ára samningur um áframhaldandi leigu Strengja á Minnivallalæk í Landssveit. Nú þegar eru árin orðin 20 sem Strengir hafa haft hann á leigu og því verða árin að minnsta kosti 30. Nánar upplýsingar má finna á www.strengir.is
Í Minnivallalæk er veitt á 4 stangir og er einungis fluga leyfð. Síðast liðið ár veiddust í læknum 250 urriðar, mest bolta fiskar.