Við sögðum fyrir skömmu frá góðri veiði í Gufuá og birtum hér aftur smá frétt frá ánni, enda veiðist vel þar þessa dagana. Gylfi Jón Gylfason var við veiðar í ánni í dag og í gær ásamt syni sínum, Sveini Inga og þeim Baldri Guðmundssyni og Róbert Orra Skúlasyni. Þeir félagar náðu á þessum tíma samtals 12 löxum og misstu amk. annað eins. Á myndinni hér til hliðar má sjá þá Svein Inga, Baldur og Róbert með afla ferðarinnar og nýja veiðihúsið við Gufuá er í bakgrunni.
Laxana tóku þeir bæði á maðk og flugu og þeir staðir sem nú eru inni í Gufuá eru frá 0 og uppí veiðistað nr. 10. Margir laxana voru lúsugir og sögðu þeir félagar að töluvert af laxi væri að ganga uppí ána þessa dagana. Eins og margir vita þá rennur Gufuá til sjávar í ósa Hvítár í Borgarfirði og gætir sjávarfalla í ca. 7 neðstu veiðistöðum árinnar. Veitt er með 2 stöngum í Gufuá. Spennandi er að sjá hver framvindan verður næstu daga í ánni en hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá þessum veiðitúr þeirra félaga.
{gallery}g3{/gallery}
Hér má sjá hvað er laust í Gufuá á næstunni.
info at veida.is