Eins og við höfum áður sagt frá hefur veiðin gengið vel í Gufuá í sumar. Kraftmiklar göngur eru í Borgarfirðinum þessa dagana og Gufuá fer ekki varhluta af því. Gufuá er nett laxveiðiá en rigningarnar nú og undanfarið hafa tryggt að vatnsbúskapur er með besta móti. Flestir dagar hafa verið bókaðir í ánni að undanförnu og næstu dagar vel bókaðir. Nú eru komnir yfir 50 laxar úr ánni í sumar og þar á meðal skilaði síðasti sunnudagur 9 löxum. Eins og hér má sjá eru nokkrir lausar stangir þegar líður á Júlí – Stangardagurinn á 17.500 – 20.000 kr.

 

[email protected]