Norðurá í Borgarfirði er ein albesta laxveiðiá landsins með um 2.200 laxa meðaltal fyrir síðustu 10 sumur. Veitt er er með 8-12 stöngum í Norðurá I en á Norðurá II er veitt á 3 stangir. Norðurá I er selt með „full service“ veiðihúsi en með Norðurá II (Fjallið) fylgir veiðihús þar sem menn sjá um sig sjálfir. Veiðisvæði Norðurá II breytist nokkuð yfir sumarið en í júní á það við neðri hluta laxasvæðisins á Norðurá I sem þá er kennt við Munaðarnes. Í júní er Norðurá II selt í heilum dögum, án veiðihúss. 

Lausir veiðidagar í Norðurá eru nú komnir inná veiða.is – sjá nánar hérna – en einnig er hægt að senda póst á [email protected]

 

{gallery}nordura{/gallery}

[email protected]