Flóðatangi – Neðsta veiðisvæði Norðurár – veiðileyfin komin á vefinn – óbreytt verð
Neðst í Norðurá er tveggja stanga Laxa og silungasvæði sem kallað er Flóðatangasvæði. Þar í gegn fer allur sá lax sem gengur í ána og því sannarlega von að ná þar í lax. Á svæðinu er einnig nokkuð af staðbundnum silungi, urriða og bleikju. Töluvert af sjóbirtingi veiðist þar einnig. Þar eru nokkrir fornfrægir veiðistaðir eins og Kastalahylur, Hlöðutúnskvísl og Ármót en á svæðinu eru margir veiðistaðir. Veiðimörk eru vel merkt og er brýnt að virða þau.
Fín laxveiði og birtingsveiði var á svæðinu síðasta sumar.