Landssamband Stangveiðifélaga(LS) hefur látið vinna fyrir sig greinargerð eða úttekt um stöðu og horfur á veiðileyfamarkaðnum á Íslandi. Tilefnið var umræða um verðlag og vaxandi óróleiki vegna samdráttar í sölu á veiðileyfum. Niðurstaða úttektarinnar sýndi LS að staðan er verri en sambandið hafði óttast. Telja þeir að rétt sé að bregðast við strax með lækkun veiðileyfa. Hér má sjá fréttatilkynningu sambandsins og markaðsúttektina sjálfa:

Fréttatilkynning

Ögurstund er runnin upp á stangaveiðimarkaðnum á Íslandi. Samkvæmt nýrri markaðsúttekt sem unnin hefur verið fyrir LS kemur í ljós mikill samdráttur í sölu veiðileyfa. Samdráttur á besta tímanum er á bilinu 10 – 20% í stangafjölda en þar sem þetta er dýrasti tíminn þá eru fjárhagsleg áhrif enn meiri og lætur nærri að vera um 30% fall í sölu hjá flestum stærstu veiðileyfasölum á Íslandi

Íslenskir stangaveiðimenn halda einnig að sér höndum og þar mælist samdrátturinn allt að 40% samanborið við sama tíma í fyrra.

Veiðifélög og leigutakar sem rætt var við í tengslum við úttektina sögðu að aðstæður væru fordæmalausar. Kreppan er núna fyrst að koma fram á þessum markaði og á sama tíma er Evrópa í sárum. Ofan á þetta allt bættist mesta hrun sem orðið hefur í íslenskri laxveiði síðasta sumar.

Veiðileyfi á Íslandi eru einfaldlega orðin of dýr í samanburði við hágæða laxveiðileyfi í heiminum . Stangaveiðifélag Reykjavíkur bendir á að veiðileyfi hafi á síðustu 15 – 20 árum hækkað 100% umfram vísitölu og hafi því tvöfaldast að raungildi.

Dæmi um þróunina frá SVFR; Hjónaferð í Hítará árið 1998 á dýrasta tíma kostaði með öllu 120 þúsund krónur. Sama ár kostaði helgarferð fyrir hjón til London einnig 120 þúsund krónur. Nú kostar veiðiferðin í Hítará ríflega hálfa milljón á meðan að Londonferðin er á 180 þúsund krónur.

Viktor Guðmundsson formaður LS
„Landssamband Stangaveiðifélaga vissi að ástandið var alvarlegt en þessi úttekt sýnir og sannar að staðan er verri en við óttuðumst og ljóst að menn hafa hreinlega áhyggjur af vörumerkinu Íslandi í laxveiðinni. Stjórn LS telur að bregðast þurfi strax við en að sama skapi er mikilvægt að allir hagsmunaaðilar komi að því borði og ræði málin með þeim hætti að lágmarka skaðann sem fyrirsjáanlegur er“.

Hér er úttektin í heild sinni

[email protected]