Við höfum allt frá því í vor minnst reglulega á nýja veiðisvæðið í ásunum, ósasvæðið. Veiði á svæðinu var skipt í tvö tímabil, 1. mai til 20. júní og síðan 20. ágúst til 10. september. Vortímabilið gekk mjög vel. Þó svo að fyrstu dagarnir hafi farið í læra á svæðið og átta sig á veiðistöðum, þá veiddist mjög vel þegar á leið og virðist svæðið hafa heillað marga.

Að minnsta kosti tvær umsagnir/frásagnir hafa verið birtar í blöðum eða vefritum í sumar af svæðinu. Í grein sem Pálmi Gunnarsson skrifaði í Viðskiptablaðið í sumar sagði hann m.a.:“Við mættum á svæðið morguninn eftir, þegar vel var fallið út. Það var fiskur úti um allt, í öllum röstum, við öll horn, á hægri siglingu niður með útfallinu og fiskur á í fyrsta kasti.“ og “ Megnið af fiskinum sem við lönduðum var stór og vel haldin sjóbleikja og að auki nokkrir fallegir sjóbirtingar. Bleikjurnar voru fullar af marfló og sjóbirtingurinn troðinn af loðnu. Þessi stutta veiðiferð í Laxá á Ásum var eins og þær gerast bestar.“ Á vefnum V&V birtist síðan frásögn af veiðistoppi Ritstjóra vefsins á svæðinu nú í júlí. Þar segir m.a.:“Niðurstaðan: Verulega skemmtilegt svæði, stutt og aðgengilegt. Og ekki væsir um veiðimenn í gamla veiðihúsi Laxár á Ásum.“

Inná veiða.is er hægt að finna síðustu lausu dagana á ósasvæðinu nú í haust. Um er að ræða 5 daga sem allir eru í lok ágúst. Kikið á þá hér