Miðasala á RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíð hófst formlega þann 10. febrúar. Uppselt var á sýninguna í fyrra en þá var sýningin haldin í fyrsta sinn á Íslandi og komust færri að en vildu. Um er að ræða einn alskemmtilegasta viðburðinum á dagatali stangveiðimanna og kvenna að undanskildum veiðitúrunum sjálfum. Sýningin fer fram í Bíó Paradís þann 10. mars n.k. kl. 20:00 en miðasala fer fram í Veiðivon Mörkinni 6 og er miðaverð kr. 2.100 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar er að finna hér í fréttatilkynningu RISE.