Nú er mars mánuður gengin í garð. Það þýðir tvennt: Veiðitímabilið hefst eftir einungis einn mánuð og RISE Fluguveiði kvikmyndahátíðin er handan við hornið. RISE er nú haldin í fimmta sinn og í ár verður hún enn veglegri en áður. Hátíðin verður haldin í Háskólabíó í ár en í anddyri bíósins verður vegleg veiðisýning á undan og á meðan sýningu stendur. Ekkert kostar inná veiðisýninguna. Við hverjum alla til að hefja veiðitímabilið í Háskólabíó fimmtudagskvöldið 26. mars – Sjá fréttatilkynningu frá umsjónaraðilum RISE.
Hér eru nokkrar myndir úr aðalmynd hátíðarinnar úr smiðju Gin-Clear media, „Backcountry – North Island“. Eigandi mynda: Nick Reygaert
{gallery}risa2015{/gallery}