Seltjörn á Reykjanesi er veiðivatn sem margir þekkja en það er örstutt frá þjóðveginum sem liggur til Grindavíkur. Vatnið hefur verið vinsæll áfangastaður veiðiáhugamanna í langan tíma og frábær staður til að æfa fluguköstin. Töluvert er af fiski í vatninu en í gegnum tíðina hefur mikið af fiski verið sleppt í það, bæði urriða, bleikju og regnbogasilungi. Einnig er staðbundinn stofn í vatninu. Reglulega heyrast sögur af boltafiskum sem koma á land. Fleiri fiskum verður sleppt í vatnið síðar í maí.

Júlíus í Flugukofanum í Keflavík hefur umsjón með vatninu og selur í það leyfi en nú mun einnig verða hægt að kaupa veiðileyfi í vatnið hér inni á veiða.is – Verði er stillt í hóf en dagurinn kostar kr. 1.500.

[email protected]