Það búa vænir laxar í Skjálfandafljóti. Fljótið hefur farið mjög vel af stað og yfir 70 laxar komnir á land. Þessi bolti hér að ofan kom á land í gærmorgun á austurbakkanum, þeim Efri. Skjálfandafljótið er frábær kostur fyrir þá sem vilja berjast við svona boltafiska í stórbrotnu umhverfi. Þess má geta að nú eru valdir veiðidagar í Skjálfandafljóti á tilboði, 19.900 kr. hver stangardagur.

 

Sjá nánar um tilboðsdagana inni á agninu.

[email protected]