Veiðin í Skógá er nú farin að rúlla af stað. Fyrsti laxinn kom á land 17. júlí og síðustu daga hafa svo nokkrir til viðbótar komið á land. Skógá er fyrst og fremst síðsumars á; veiðin er best þegar kemur inní ágúst og í september. Þrír laxar komu á land í gær og komu þeir allir á land fyrir neðan brú. Var um að ræða 2ja ára laxa, 10-14 punda hængar allt saman. Sigurður Kr. Finnsson heitir veiðimaðurinn og er hann hér á myndinni til hliðar með einn þessara laxa.

 

 

Það eru nokkrir lausir dagar í Skógá núna í ágúst og september. Stangardagurinn er á kr. 25.000. Sjá nánar hérna.

info at veida.is