Skógá er á ágætri leið að ná sér uppúr þeim öldudal sem hún lenti í eftir gosið 2010. Í fyrra komu yfir 150 fiskar á land við litla ástundun. Í gegnum tíðinni hefur veiðst mest í Skógá frá miðjum ágúst og út tímabilið. Síðustu daga höfum við heyrt af nokkrum vænum löxum sem veiðast hafa í ánni, m.a. 3 sem komu á land í dag. Finnur Sigurðursson og Gunnar Friðriksson kíktu í Skógá í nokkra tíma í dag og náðu þremur flottum löxum, 84, 80 og 70cm löngum. Að auki misstu þeir einn vænan. Þeir náðu öllum löxunum skammt fyrir neðan brú á þjóðvegi nr. 1. Allir tóku þeir Skógá keilutúpu og notuðu þeir einnig hraðsökkvandi enda. Einn þessara laxa var með halalús. Eitthvað er um lausa daga í Skógá hérna inni á veiða.is – sjá hérna.
Á myndinni má sjá Finn Sigurðsson með einn þeirra laxa sem kom á land í dag.
Gunnar Friðriksson með vænan lax úr Skógá.
