Galtalækur er góð 2ja stanga urriðaá (lækur) sem rennur saman við Ytri Rangá vel fyrir ofan laxasvæði Ytri. Oft veiðist mjög vel í Galtalæk en veiðisvæðið er viðkvæmt og því mikilvægt að nálgast það með gætni.
Í Galtalæk má finna mjög stóra urriða og einnig að sjálfsögðu marga smærri. Einungis má veiða á flugu og skal öllum urriða sleppt aftur.
Fluga er eina leyfilega agnið.
Við fengum skýrslur frá veiðimönnum sem kíkt hafa í lækinn síðustu daga – veiðin er að byrja að taka við sér. Veiðimenn sem voru við lækinn á föstudaginn lönduðu 3 urriðum – sá stærsti um 60cm langar. Annar veiðimaður sem kíkti í lækinn fyrir nokkrum dögum fann fisk á 6 veiðistöðum – þar á meðal eina stóra bleikju sem var neðarlega á svæðinu.
Myndin hér meðfylgjandi er af einum fiskum sem kom á land á föstudaginn.