Þær halda áfram að streyma inn á vefinn, myndirnar af stórlöxum sem eru að veiðast þessa dagana. Þessa fengum við lánaða á FB síðu Hofsár. Myndin er af stærsta laxi sumarsins í Hofsá, 106 cm hæng sem náðist á micro hitch á veiðistaðnum Hagabrekku, í gær. Veiðimaðurinn heitir Birgir. Laxinn er flottur og þeir eru örugglega nokkrir í þessari stærð sem synda um í Hofsá þessa dagana.

[email protected]