Veiði hófst í Þingvallavatni í síðustu viku. Þann 15. apríl „opnuðu“ nokkur privat svæði en á föstudaginn síðasta, 20. apríl, hófst veiðin í Þjóðgarðinum. Aflabröðin um helgina voru mun betri en men þorðu að vona. Dæmi er um allt uppí 8 eða 9 fiska yfir daginn, 60-85 cm langa. Veiðimenn eru að fá urriða mjög víða og veit það á gott fyrir næstu daga. Lambhagi er alltaf vinsæll en við höfum heyrt af fiskum allt austur að pallinum. Við minnum á það þeir sem skráðir eru á póstlista veiða.is fá Veiðikortið 2018 á betra verði.

Helst eru menn að veiða á flotlínu eða hægt sökkvandi línu, straumflugur og „strippa“ hægt.

Mynd: Aron Jarl með einn 78 cm sem veiddist í Þjóðgarðinum 21. apríl