Svartá í Húnavatnssýslu, í Svartárdal er gullfalleg fluguveiðiá. Svartá rennur í Blöndu í Langadal og er áin líkt og Blanda þekkt fyrir væna laxa. Veiðisvæðið byrjar við veiðistaðinn Gullkistu en þar rétt fyrir ofan er Ármót sem hefur verið aflahæsti veiðistaðurinn í Svartá ár eftir ár. Þar ræður reyndar vatnshæð Blöndu mestu um. Efsti veiðistaðurinn á Laxasvæðinu er Teigakot.
Svartá hefur verið fullbókuð síðustu 2 tímabil, en nú var að losna Stórstreymisholl í lok þessa mánaðar – Hollið 28-31. júlí. Þegar bókað er í Svartá, þá er greitt fyrir 3 stangir en það má veiða á 4 stangir. Gott sjálfsmennsku hús er við Svartá.
Þetta er eina lausa hollið í Svartá í sumar – sjá hér.