Veiðimenn! Takið endilega þátt í þessari könnun sem Þorgils Helgason stendur fyrir en hún er hluti af Meistaranámi hans við Háskóla Íslands. Hún fjallar um Vörumerki og ímynd íslenskra stangveiðivöruverslana. Það tekur ca. 4 mínútur að klár þessa könnun. Sjá nánar hér að neðan.
Kæri þátttakandi,
ég er að vinna rannsókn sem er hluti af meistaranámi mínu við Háskóla Íslands. Tengill á könnunina hefur verið sendur á helstu veiðivefmiðla landsins til að ná til stangveiðimanna. Markmiðið er að kanna ímynd og vörumerki stangveiðibúða í hugum stangveiðimanna á Íslandi. Þátttaka þín tryggir marktækari niðurstöður fyrir rannsóknina. Það tekur um 5 mínútur að svara könnuninni. Mér þætti einstaklega vænt um þína aðstoð og ég hvet þig líka til að senda spurningalistann áfram á þá stangveiðimenn sem þú þekkir. Svör verða ekki rakin til einstaklinga.
Takk kærlega fyrir þátttökuna,
Þorgils Helgason
Könnun: http://www.kannanir.is/nemendur/index.php?sid=34826&lang=is