Á fundi sínum á föstudaginn síðasta samþykkti Þingvallanefnd að draga til baka bann sem sett var á næturveiði í landi Þjóðgarðarins í sumar. Bannið var mjög umdeilt og var harðlega gagnrýnt. Þingvallanefnd staðfesti samstarfsyfirlýsingu sem Þjóðgarðsvörður hafði unni í samstarfi við Landsamband Stangveiðifélaga og Veiðikortið um sameiginlegt eftirlit og og átak í að bæta veiðimenningu við vatnið.

 

Yfirlýsingin er svohljóðandi:
„Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Landsamband stangaveiðifélaga (LS) og Veiðikortið hafa gert með sér samkomulag um að bæta veiðimenningu við Þingvallavatn með auknu eftirliti og fræðslu á komandi veiðitímabili sem hefst 1. maí nk. Þingvallanefnd heimilar að nýju stangveiði um nætur í landi þjóðgarðsins í sumar enda sameinist aðilar um að taka upp eftirlit um nætur til að koma megi í veg fyrir veiðiþjófnað, notkun ólöglegrar og skaðlegrar beitu, slæma umgengni, ónæði og drykkjuskap.Um er að ræða sameiginlegt verkefni þar sem allir aðilar leggja sitt af mörkum til að þessi árangur náist skv. nánari verkaskiptingu.

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, sem hefur sinnt veiðivörslu að degi til, tekur upp eftirlit við vatnið um nætur og eykur upplýsingastreymi til veiðimanna s.s. á skiltum, heimasíðu og í fjölmiðlum. Veiðimenn úr hópi félagsmanna stangaveiðifélaga leggja næturvörslunni lið, félögin hvetja á heimasíðum, facebook-síðum, í tímaritum og fréttabréfum til góðrar umgengni og virðingar við Þingvallavatn og aðra gesti þjóðgarðsins. Veiðikortið leggur til ákveðinn fjölda veiðikorta sem umbun fyrir framlag félaganna. Enn fremur verður efnt til sérstakra veiðinámskeiða við vatnið, bæði fluguveiði- og kastnámskeiða.Aðilar setja á laggirnar samstarfshóp sem mun útfæra ofangreint verkefni.

Starfshópurinn lýkur störfum á næstu dögum þannig að fyrirkomulag og verkaskipting liggi fyrir við upphaf veiðitímabilsins.Aðilar árétta að með þessu er ekki aðeins lagður grunnur að bættri veiðimenningu í þjóðgarðinum heldur er efnt til samstarfs þjóðgarðsins og veiðimanna um verndun Þingvallavatns sem haldið verður áfram til lengri tíma.

Jafnfram eru aðilar sammála um að endurskoða ofangreindar ákvarðanir og fyrirkomulag að loknu veiðitímabilinu 2013.“

[email protected]