Um helgina birtist auglýsing frá bænum Árbót í Aðaldal þar sem laxveiðisvæði þeirra í Laxá er boðið til leigu. Um er að ræða 3,6 km langt 2ja stanga svæði á austurbakka Laxá í Aðaldal en SVFR var með þetta svæði á leigu í fyrrasumar. Þær jarðar sem eiga veiðirétt á móti Árbót, þ.e. á vesturbakkanum, eru Knútsstaðir, Tjörn, Jarlsstaðir og Hjarðarhagi. Veiðitími svæðisins er frá 20. júní til 20. september og rennur tilboðsfrestur út þann 10. desember.
Áhugasamir geta sent tilboð á netfangið [email protected] eða á Árbótarbús ehf. Árbót, Aðaldal. 641 Húsavík.