Veiðivertíðin fer á fullt á morgun þegar fyrstu laxveiðiárnar opna. Silungsveiðin hefur verið fín í vor og nú þegar sumarfríin fara á fullt, þá hefst veiðin fyrir alvöru.Til að græja sig upp og gera sig kláran fyrir sumarið, er um að gera að kíkja í veiðibúðir og ná sér í það sem vantar. Bæklingurinn „Veiði 2013“ er komin út hjá Veiðihorninu. Bæklingurinn er smekk fullur af vönduðum góðum veiðibúnaði frá Veiðihorninu, í bland við ýmsan fróðleik.
„Veiði 2013“ er afar vandaður bæklingur sem er alfarið unnin af starfsmönnum Veiðihornsins. Í honum má finna allar vöruupplýsingar ásamt myndum og verði. Bæklinginn er hægt að nálgast í búðum Veiðihornsins í Síðumúla og í Hafnafirði, hann er ókeypis.