Veiði hefst í Hlíðarvatni í Selvogi á morgun, 1. maí – Engir lausir dagar eru í húsi Árbliks í Maí en þegar kemur inní júní þá má finna lausa daga. Tvær stangir eru seldar saman í einum pakka og fylgir veiðihús veiðifélags Árbliks með í pakkanum. Verð fyrir pakkann er frá 12-14.000 í júní og júlí en er lægra í ágúst og september. Leyfilegt er að veiða á flugu og spún í vatninu. Hér má finna upplýsingar um lausa daga.