Fyrsti veiðidagur í Brúará var 1. apríl. Spóastaðasvæðið var lítið stundað þann dag vegna veðurs en nú um helgina nýttu veiðimenn við ána ágætt veður til að leita af bleikjunni. Þeir sem voru við veiðar í dag náðu 8 bleikjum og einum urriða. Fiskunum náðu þeir við brúna, Hrafnakletta og í Kerlingarvík. Framundan eru lausir dagar í Brúará. Verð á stöng á dag er kr. 2.700.