Við höfum nú tekið í sölu hér á veiða.is nokkra daga í Skógá. Þetta er þriðja sumarið í röð, sem hægt er að nálgast daga í Skógá hér á vefnum. Um er að ræða nokkra daga í júlí, ágúst og september. Skógá er að ná sér eftir áfall í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli og veiðin í fyrra sumar var góð. Veiðin hefur verið á uppleið og síðustu 3 árin hafa á bilinu 130-200 laxar veiðst í ánni. Verð veiðileyfa er á bilinu 15-35.000 fyrir stangardaginn. Sjá dagana hérna.