Einn af vorboðunum er þegar veiðileyfin í Brúará eru skráð inná veiða.is, en það hefur nú gerst. Veiðin þar hefst 1. apríl og stendur fram undir loka september. Verð veiðileyfa er það sama og það hefur verið undanfarin ár. Í april og maí er verðið 2.700 en flesta daga sumarsins er verðið 3.300. Veitt er á max 8 stangir á þessu svæði í Brúará, Spóastaðasvæðinu. Hér má sjá lausa daga.