Fyrir stuttu síðan sendi hún Guðrún Una formaður Stangaveiðifélags Akureyrar, okkur stuttan pistil um hið blómlega vetrarstarf sem boðið er uppá fyrir norðan. Nú styttist í að veiðivertíðin hefjist og er um að gera fyrir alla stangveiðimenn að taka þátt í þessu flotta framboði afþreyingar fyrir veiðimenn sem boðið er uppá fyrir norðan. Pistillinn er hér að neðan.
„Vetrarstarf Stangaveiðifélags Akureyrar (SVAK), Flúða og Flugunar er í fullum gangi þessa dagana og hefur mæting verið góð en uppákomurnar eru haldnar á hverju mánudagskvöldi kl 20 í Amaróhúsinu í samstarfi við Veiðivörur.is. Þetta starf er liður í að stytta veiðimönnum stundir fram að stangveiðitímabilinu, kynna fyrir þeim veiðisvæði félaganna og annað efni tengt þessu vinsæla sporti.
Hnýtinganámskeið var haldið nýlega og mættu þar um 10 manns og lærðu að hnýta silungaflugur undir dyggri leiðsögn Valdimars Friðgeirssonar hnýtara með meiru. Að námskeiðunum loknum hafa síðan verið haldin almenn hnýtingakvöld þs veiðimönnum gefst kostur að hittast, hnýta nokkrar flugur og spá í spilin fyrir næsta veiðisumar.
Þá kynntu Flugumenn sínar ár fyrir skömmu en þ.e laxveiðiáin Hölkná í Þistilfirði og Ólafsfjarðará sem þeir eru leigutakar að ásamt SVAK. Ólafsfjarðará fór í framhaldinu inná söluvef SVAK og er opin félagsmönnum til 1.apríl en fer eftir það í almenna sölu.
Nýverið hélt Erlendur Steinar Friðriksson pistil þ.s hann fór ýtarlega yfir bleikjuveiði í Eyjafirðinum og víðar. Bleikjuveiði hefur farið minnkandi undanfarin ár og velta menn fyrir sér ástæðunni en hækkandi hitastig vatns og ofveiði sem ekki hjálpar til þegar stofnstærð veiðisvæða er i lágmarki eru hugsanlegir orsakaþættir.Í pistlinum kom einnig fram að sjóbirtingur/urriði er farinn að veiðast í meira magni en áður í mörgum bleikjuám á Eyjafjarðarsvæðinu en hvort sú fjölgun er á kostnað bleikjunnar og hafi áhrif er erfitt að færa sönnur á.
{gallery}svak{/gallery}
Ýmislegt er framundan í vetrarstarfinu hjá veiðifélögunum þremur en þar má nefna pistla um Hörgá og Svarfaðardalsá sem eru í umboðssölu hjá SVAK en þeir verða haldnir 4.mars n.k. Veiðisvæði stangveiðifélagsins Flúða verða einnig kynnt fljótlega en það eru árnar Fjarðará í Hvalvatnsfirði og hin eina og sanna Fnjóská. Þá mun Hermann Bárðarson fjalla um Hraun og Syðra-fjall í Laxá í Aðaldal en þau veiðisvæði fara fljótlega á söluvef SVAK. Þegar líður á vorið er meiningin að brydda uppá ýmsu skemmtilegu í tilefni af 10 ára afmæli Stangveiðifélags Akureyrar. Nánari upplýsingar um þessa atburði er að finna á svak.is. og fjésbókarsíðu SVAK. Þess má geta að ókeypis er inn á þessar uppákomur og allir eru velkomnir.
Guðrún Una Jónsdóttir form. SVAK“