Nú er vika síðan veiði hófst í Hlíðarvatni. Ágætur gangur hefur verið flesta daga þessarar fyrstu veiðiviku sumarsins í vatninu. Við höfum heyrt af nokkrum veiðimönnum sem hafa verið með yfir 10 fiska þar sem þeir stærstu hafa verið nálægt 2 kg. Við hvetjum alla sem eru við veiðar í vatninu að senda okkur myndir á póstfangið [email protected].

Á næstu dögum munum við reyna að birta veiðitölur úr vatninu fyrir fyrstu daga sumarsins.

Fyrir áhugasama þá eru 5 lausir dagar í Júní í Hlíðarvatni. Þeir dagar kosta 12.000 kr. en innifalið er veiðileyfi fyrir 2 stangir og gisting í veiðihúsinu. Sjá nánar hérna.

[email protected]