Veiðin í Ytri Rangá hefur verið mjög góð í sumar og nokkuð ljóst að sumarið verður eitt af þeim betri í ánni. Nú eru komnir yfir 5.000 laxar á land og enn um 50 dagar eftir að veiðitímanum. Þann 7. sept hefst maðkatíminn í ánni en þangað til má eingöngu veiða á flugu. Nú næstu daga eru nokkrar stangir lausar í ánni og þá daga má sjá hérna. Hægt er að bóka staka daga eða fleiri en einn samliggjandi. Veiðin hefur verið góð á öllum svæðum að undanförnu og sumir veiðistaðir eru hreinlega kjaftfullir af laxi. Einn þessara staðar er tjarnarbreiðan á svæði 3 en seinnipartinn í gær komu þar 25 laxar á land.

Hér á myndinni að ofan er Axel Viðarsson með 83 cm hrygnu sem var lax nr. 25 til að koma á land á seinni vaktinni í gær á tjarnarbreiðunni. Hér að neðan stígur einn þessara 25 laxa, smá dans á breiðunni.

info at veida.is