Jæja, nú eru aðeins örfáir dagar í að veiðin hefjist. Veðurspáin fyrir næstu helgi lítur þokkalega út. Á suðurlandi verður hiti á bilinu 1-°6, austan 3-9m/s og smá úrkoma, bæði 1.og 2. apríl. Fyrir norðan verður hiti á bilinu 1-°3, smá vindur og úrkoma þann 1. apríl en bjart og stillt á 2. og 3. apríl. Við munum fylgjast náið með veiðinni þessa fyrstu dagar verðtíðarinnar og birta ykkur fréttir og myndir af vettvangi. Við minnum á að lausa daga í Brúará, Galtalæk og Hlíðarvatni. Sjá hér.