Nú eru laxveiðiárnar að loka hver af annari og margar silungsveiðiár loka einnig fyrir lok september. Veðrið þessa dagana er fínt, milt haustveður sem hentar vel til veiða. Það eru nokkrar lausar stangir hér inni á veiða.is í september. Fyrir þá sem eru ekki enn búnir að pakka veiðidótinu niður þá er um að gera að kíkja á það, sjá að neðan.

  • Síðasti veiðidagur í Brúará fyrir landi Spóastaða er 24. sept. Við heyrðum af veiðimönnum sem voru við veiðar í gær og þeir voru komnir með 1 lax og nokkrar bleikjur um hádegisbil.
  • Veitt er í Hlíðarvatni út mánuðinn. Það er nokkrir dagar lausir. Bleikjan hefur verið að gefa sig að undanförnu.
  • Aðal veiðitíminn í Laxá og Brúará í Fljótshverfi er núna og fram í október. Við heyrðum að veiðimenn sem komu þangað á föstudaginn náðu þá 3 flottum birtingum, á bilinu 3-6 pund. Það eru nokkrir lausir dagar á svæðinu. Sjá hér.
  • Eldvatn í Meðallandi hefur verið sjóðheitt í september. Veiðin hefur á köflum verið frábær. Það eru laus holl nú framundan. Kíkið á þau hérna.

[email protected]