Hvernig er veiðin búin að vera að undanförnu? Er spurning sem flestir veiðimenn hafa spurt, bæði aðra veiðimenn og söluaðila veiðileyfa.  Staðreyndin er að veiðitölur skila sér yfirleitt seint og illa, þó hagsmunir veiðimanna, leigutaka, söluaðila og opinberra aðila fari saman – það er allra hagur að til sé veiðibók sem gefur glögga mynd af stöðu veiðisvæða.

Við höfum að undanförnu stofnað veiðibækur fyrir nokkur veiðisvæði inn á www.hafogvatn.is – þar er geta veiðimenn einnig séð kort af veiðistöðum. Við hvetjum alla veiðimenn sem kíkja á okkar svæði, að skila inn veiðitölum – annað hvort með skráningu beint á hafogvatn eða með því að senda okkur veiðiskýrslu á [email protected]

Hérna eru nokkrar veiðibækur:

Hólaá, útey.

Brúará, Skálholt

Brúará, Spóastaðir

Hvítá, Skálholt

Sog, Torfastaðir

Svartá í Skagafirði

Galtalækur

 

Við munum stofna fleiri bækur á næstu dögum, vikum.