Veiði hófst í Hvolsá og Staðarhólsá í gær, 1. júlí. Það var töluvert af fiski sem beið veiðimanna þegar þeir komu. Eftir fyrsta daginn voru 6 laxar komnir á land og 4 bleikjur. Flott byrjun á þessu svæði. Mjög lítið er laust í Hvolsá og Staðarhólsa, fyrr en í lok september
Fín dagur var í Ytri Rangá í gær, 1. júlí. 30 laxar komu á land, bæði stórlaxar og smálaxar – töluvert af fiski er að ganga uppí ána á hverju flóði. Við eigum nokkrar stangir lausar á næstunni.
Veiðin á Hrauni í Ölfusi er búin að vera fín – við heyrðum af einum aðila sem fór 30. júní – hann náði 8 fínum fiskum á ca. 2 klst. Það kostar einungis kr. 2.500 á Hraunið, sjá hér.