Nú bætast í veiðileyfa framboðið inná veiða.is, hægt og örugglega. Nýjasta viðbótin eru laus veiðileyfi á veiðisvæðinu Straumum í Borgarfirði og Brennu í Borgarfirði. Um er að ræða 2ja og 3ja stanga veiðisvæði sem eru laxveiðimönnum á Íslandi og víða annarsstaðar, vel kunn. Mikið af laxi og sjóbirtingi fer um þessi svæði og staldra þar við um lengri eða skemmri tíma. Straumarnir hafa gefið 300 laxa að meðaltali síðustu 2 ár og á veiðisvæði Brennu veiðast fyrirleitt 300-500 laxar og 200-300 sjóbirtingar. Hérna má finna lausa daga á þessum svæðum og hérna má lesa nánar um þessi veiðisvæði.