Nú eru veiðileyfi í Skógá undir Eyjafjöllum komin í sölu inná veiða.is. Undanfarin 3 ár hafa nokkrir dagar í Skógá komið hingað inná vefinn í sölu og hefur áin verið nokkuð vinsæl, enda er verð veiðileyfa í lægri kantinum fyrir laxveiðiá, allt agn er leyfilegt og stakir dagar eru seldir.
Skógá undir Eyjafjöllum er 4ra stanga lax og silungsveiðiá. Svæðið sem veitt er á samanstendur af um 7 kílómetra kafla Skógár, 2km kafla Kvernu og 1,5 km kafla Dalsár. Svæðið er afar fjölskylduvænt og gott aðgengi er að hyljum. Árlega hefur um 30 þús laxaseiðum verið sleppt í ána.
Leyfilegt agn í Skógá er fluga, maðkur og spúnn. Seldir eru heilir dagar, frá morgni til kvölds. Ekki er veiðhús við ána. Verð veiðileyfa er 25-40þ stangardagurinn.