Veiðin í Hlíðarvatni við Selvog hljóðaði uppá 1.205 bókað fiska. Bleikja var uppistaðan eins og við er að búast, en þó veiddust amk. 6 sjóbirtingar í vor. Eins og áður, þá er víst að þó nokkuð sé um að veiðimenn fari frá vatninu, án þess að skrá veiðina í veiðibækur. Veiðin var mikið mun slakari þetta sumarið, en sumarið 2016 sem þá var 3x til 4x meiri en sumarið á undan. Sveiflur eru því áfram miklar í veiðinni.
Veitt er á 14 stangir í Hlíðarvatni og er leyfilegt agn fluga og spúnn. Fimm veiðifélög eiga rétt til veiða í Hlíðarvatni. Veiðitímabilið hefst í byrjun maí ár hvert og stendur út September. Lang mest ástundun er í upphafi vertíðar en dvínar þegar líður á, mismikið þó eftir veiðifélögum. Við hér á veiða.is höfum verið í samstarfi við stangveiðifélagið Árblik sem fer með veiðirétt 2ja stanga í Hlíðarvatni. Bókanir fyrir næsta tímabil fara af stað fljótlega eftir áramót.