Nú eru veiðimenn og veiðikonur efalaust búin að jafna sig eftir síðasta veiðitímabil. Við erum að minnsta kosti komin á fullt í undirbúningi fyrir næsta tímabil. Á næstu dögum og vikum munum við opna fyrir vefsölu hvers svæðis á fætur öðru og nú er laus leyfi þess fyrsta komin á vefinn.

Hvolsá og Staðarhólsá – 4 stanga svæði. Laxveiði en mikið af bleikju veiðist yfirleitt framan af tímabili. Leyfilegt er að veiða á flugu og maðk. Mjög gott veiðihús sem veiðimenn hafa aðgang að. Samtals 4 2ja manna herbergi og 2 single herbergi. Góð setustofa og rúmgott eldhús. Frábært svæði fyrir fjölskyldur og stærri vinahópa.

Hérna má finna laus holl í sumar. 

Á næstu dögum koma svo fleiri svæði inná vefinn. Ef þið hafið einhverjar spurningar, má senda póst á [email protected].