Nú er veiðin í Veiðivötnum farin að rúlla af stað af krafti þó svo að það þurfi að fara aftur um níu ár til að finna jafn litla veiði í fyrstu viku sumars og nú.

Alls veiddust 3.075 fiskar fyrstu dagana, 1.843 urriðar og 1.232 bleikjur. Í fyrra veiddust mun fleiri fiskar eða alls 3.654. Fyrstu vikuna í sumar veiddust flestir fiskar í Stóra Fossvatni eða alls 569 fiskar. Einungis er leyfð veiði á flugu í vatninu. Þetta er besta veiði í vatninu í um áratug. Í fyrra var það hinsvegar Litli sjór sem gaf lang mest á sama tíma eða 1.621 fisk. Í ár veiddust hinsvegar einungis 264 fiskar í vatninu. Breytingin á milli ára er athyglisverð og engin skýring komin fram á henni. Stærsti fiskurinn til þessa kom upp í Ónefndavatni og var hann 11,5 pund. Mesta meðalþyngdin var hinsvegar í Grænavatn, 4,45 pund.

Við munum reglulega í sumar flytja fréttir af svæðinu en einnig er hægt að fylgjast með fréttum inná www.veidivotn.is