Desember og janúar hafa yfirleitt verið þeir mánuðir sem veiðimenn nota til ákveða hvar veitt skal á komandi veiðitímabili. Auðvitað er ekki öllum veiðidögunum ráðstafað á þessum tíma, en flestum þó. Nú eru veiðileyfin að tínast inn á veiða.is, eitt af öðru. Hér er hægt að sjá laus holl í Eldvatni í Meðallandi, í apríl og maí. Nýjir leigutakar tóku við svæðinu fyrr á þessu ári. Veiðin í haust var mjög góð og komu nokkur mjög flott holl. Veitt er á 6 stangir í Eldvatni og leyfilegt agn er fluga. Birtingurinn er að öllu jöfnu mjög vænn. Hverju hollli sem bókað er í Eldvatni í vor, fylgir þetta fína sjóbirtingsbox sem skoða má inn í veiðibúð veiða.is

 

{gallery}eldvatn{/gallery}

[email protected]