Eftir frekar rólega byrjun í Ytri Rangá, þá virðist veiðin heldur vera að taka við sér. Síðustu daga hafa göngur verið að stækka og nýr fiskur að streyma í ána, sérstaklega sá stóri. Í gær komu 15 laxar á land á átta stangir en álíka margir laxar slitu sig af línunni. Á síðustu dögum hafa staðarir eins og Ægisíðufoss, Klöppin, Hrafnatóftir, Djúpós og 17a verið að gefa. Nú er reiknað með að veiðin munu aukast jafnt og þétt. Það er stangir lausar á næstunni í Ytri. Hægt er að skoða það hérna.

 

[email protected]