Veiðin í Ytri Rangá hefst á föstudaginn, 20. júní. Mikill spenningur er fyrir opnuninni enda hefur sést til laxa víða í ánni. Veitt er á 12 stangir í upphafi vertíðar og fram til 7. júlí, en þá er stöngum fjölgað í 16. Enn eru nokkrar stangir lausar á tímabilinu 24. júní til 1. júlí. Verð pr. stöng er þá kr. 25.000. Veitt er frá morgni til kvölds. Hér má sjá hvað er laust núna á næstu dögum.
Við munum fylgast vel með opnunardögunum hér á veiða.is.