Til hamingju með daginn veiðimenn. Það er 1. apríl í dag og nýtt veiðitímabil er hafið. Veiði hefst í fjölmörgum silungsveiðiám á Suðurlandi í dag og í nokkrum á norður og austurlandi. Veðrið hefur leikið við veiðimenn, sérstaklega á suður og vesturlandi. Veiðimenn mættu snemma að Vífilsstaðavatni, enda engin ástæða til að bíða með að viðra veiðistöngina. Þegar leið á morguninn fóru flugur að klekjast út við vatnið enda hiti rétt um 7°. Ekki voru miklar sögur af aflabrögðum, en þó voru heyrðum við af veiðimönnum sem voru að setja í fiska.
Við munum á næstu 2 dögum birta fréttir af aflabrögðum víða um land.