Á næstu 2 dögum munum við reyna að týna til veiðifréttir héðan og þaðan, þegar tilefni er til. Veiða.is hefur verið á ferðinni í dag á Suðurlandi og kíkt við á nokkrum veiðisvæðum.

Vífilstaðavatni mættu veiðimenn snemma, enda veðrið frábært. Nokkrir tugir veiðimanna reyndu sig við vatnið í morgun, en ekki miklar sögur af veiði.

Við Varmá voru veiðimenn að njóta veðurblíðunnar. Fremur lítið vatn var í ánni, m.v. árstíma og árin fremur tær. Lítið var um aflabrögð í efri hluta árinnar, en smá kropp var neðar í ánni við og fyrir neðan Teljarann og einnig á Stöðvarbreiðunni.

Veiði hófst í Sandá fyrir norðan í morgun og var það hópur á vegum Matta hjá Iceland Fishing guide sem var þar á ferð. Veiðin var mjög góð og eftir um 2 tíma voru um 10 vænir fiskar komnir á land, sá stærsti ca 7 kg.

Veiði hófst í Brúará í morgun og voru veiðimenn fremur rólegir þegar veiða.is kíkti við. Þeir voru búnir að setja í fiska en ekki landa neinum en þeir áttu eftir að skanna stóran hluta svæðisins.

Tungulækur hefur ætíð verið eitt mest spennandi vorveiðisvæðið, enda gríðarlega mikið magn af fiski í ánni. Um hádegi voru um 30 fiskar komnir á land.

Við munum birta fleiri fréttir síðar. Hér eru nokkrar myndir frá morgninum.