Þó svo að veiðin í Ytri Rangá hafi verið á þokkalegu róli síðustu 7 daga, þá hafa aldrei komið neinar alvöru vaktir, fyrr en núna. Í morgun komu 32 laxar á land, þar á meðal þessi 96 cm sem Gunnar Örn Ólafsson veiddi í Djúpósi. Það gleðilega við þessa flottu vakt var einnig það að smálaxinn var stór hluti aflans en hans hefur verið beðið um nokkurt skeið. Sá smái var í fínum holdum, pattaralegir laxar, þó sumir væru stuttir í annan endan.
Það eru örfáar lausar stangir á næstu dögum í Ytri Rangá. Hægt er að senda póst á [email protected] – sjá einnig hérna.